Efnisval - Lerki

Lerki er valið vegna framúrskarandi eiginleika sem gera það sérstaklega hentugt í útihúsgögn. Viðurinn hefur náttúrulega mótstöðu gegn raka og fúa, er þéttur og sterkur og einkennist af langri endingu án mikillar viðhaldsþarfar.
Með tímanum tekur yfirborð lerkisins á sig fallegan gráan blæ, sem er eðlileg þróun efnisins og hefur ekki áhrif á styrk þess eða endingargildi. Lerki þolir vel sveiflur í hitastigi og raka, sem gerir það að áreiðanlegu efni fyrir stóla sem standa úti allt árið um kring.
Boðið er upp á tvær útfærslur af lerki: annars vegar 25 mm hefðbundið lerki og hins vegar sérvalið, innflutt 28 mm lerki í 1. flokki. Efnið er unnið frá grófu timbri á verkstæði HB Handverks þar sem allt timbur er afréttað og þykktarheflað til að tryggja nákvæman frágang, jafnt yfirborð og vandaða heildarvinnslu.